Og hvað svo....
01. apríl 2009 klukkan 14:21
Ætli þetta hafi ekki verið lengti blogg dauði hjá mér sem ég hef verið með síðan ég byrjaði að blogga. Nú er komið facebook og eitthvað og ekkert af fólki hefur áhuga á bloggum lengur. Persónlega finnst mér blogg vera persónulegra en facebook. En hvað með það.... það eru komnir meira en tveit mánuðir síðan ég bloggaði. Hvað er búið að gerast? Látum okkur sjá.... Davíð s.s. Dabbi Queen sjálfur kom hér í heimsókn í Janúar og var allveg í 3 ef ekki 4 vikur. Ég var á fullu að reyna koma mér í gang fyrir prófin en hann kridaði vel í tilveruna hjá mér. Tók mig á djammið og geggjað stuð bara, Lagaði hárið á mér gaf mér stípur og ég veitt ekki hvað jiiiii!!!!!!
Svo leið tíminn og ég varð veikur. Úff en ég átti góða konu sem hugsaði um mig. Svo fék ég sím hringingu sem var svona "hey roomie, I coming over." Hver annar en Signý flutti inn á okkur. Sem þíðir það að við erum þrú hér í kotinu núna. Það tók sínn tíma að venjast en held að aðlögunar tímabilið fór vel að lokum. Ég og Signý erum mjög heitt fyrir hvort öðru of ef Daníel væri ekki að koma eftir viku þá held ég að eitthvað skrítið gæti gerst á þessu heimilli. Ó já DANÍEL ER AÐ KOMA og svo kemur Anna Dóra þau verða bæði í 10 dag hvor Daníel frá 8. Apríl En Anna Dóra frá 12. Þegar Anna Dóra fer þá fer Erna Lóa líka í stage einhverstaðar á einhverji stönd. Hún fær fritt fæði og húsnæði í mánuð á fjagra stjörnu hóteli. Hver veit hvað gerist í kotinnu þá......
Óli TheStar is out.....

![]() |
| Rolling Stones gay djamm með Dabba Queen |
Úrdráttur
23. janúar 2009 klukkan 10:20
Ég hef ekki bloggað síðan 1. Desember!!!! SHIT!! Þetta er ekki hægt. Ókey þá er besta að gera smá úrdrátta úr seinasta mánuðinn. Erna hélt besta afmæli í Milanó EVER! Hún vakti með pakka og í honum var morgunkorn og ljóð. Svo voru það 7 aðrir pakkar faldir um alla í búð og hver og einn með ljóði sem var vísbending um hvar næsti pakki var, geðveikt gaman. Svo hélt ég svaka partý en bara tveir mætu því aðal partý ljónið Signý var stödd í London. Ég og Erna héltu litlu jól þar sem við gáfum hvort öðru heimagerðar jólagjafir. Matur var yndislegur hjá okkur. Svo byrjaði söknuður heim, spenningur, heim koma, bíó ferð (þar sem við sáum 4 christmases), og jólin.
Jólin voru yndisleg, Við fórum í svona jólaleik að við vissum ekki frá hverjum gjöfin var og bara hver og einn átti að gefa eina gjöf. Þetta virtist ekker annað en að vera eðlilegt að búa hjá Daniel. Hann er svo yndislegur við mig. Aðfangadagur var hjá mömmu, Jóladagur hjá mömmu hans Hönnu og Áramótin voru heima hjá pabba hans. Svo vorum við með Singstar 80's þema partý heima hjá okkur eftir miðnæti. Við skeltum okkur í bæinn þar sem við hittum partý dýrið sjálft Signý og kíktum inná English pub. Þar sem aðdáandi hrópaði "vegið er enn á ný!" Han var með mér í Íslensku í FB og mundi eftir verkefninu mínu um Hallgerði langbrók.
Við héltum uppá 29. Desember með því að fara á Disney myndna Bolt, en í fyrra fórum við á Enchanted og var það fyrsta stefnumótið okkar. Bolt var í 3D og var það ógulega gaman. Bara réttara sagt æðislegt. Annað æðislegt sem ég sjá í ár var áramótaskaupið mér fannt það hreyn snild. Ég gerði margt um jólin en margt líka náði ég ekki að gera, en svona er þetta.... Endilega kíkið á myndirnar, þæri eru bæði á facebook og picasa. Já hann Dabbi Queen er í heimsókn hjá okkur, voða gaman, allavega vona ég það fyrir hann, því við höfum ekki haft mikinn tíma fyrir hann. Talandi um tíma, ég ætti að koma mér á stað til að læra því það styttist óðfluga í prófinn hjá mér. Þannig nú lýk ég þessu hjá mér,

Gjaldeyrisrugl
01. desember 2008 klukkan 14:11
Ég er þó ílla sáttur við það sem er að gerast á Íslandi. Seðlabankinn er búinn að gera þetta svo erfit fyrir okkur að fá gjaldeyri til Ítlaíu. Við þurfum að borga reikninga hér en til að fá penning út þá þar að fylla út skjöl og bíða í uþb. 14 daga. Ysss þetta land er bara fokking rugl.
En já í dag er ég að fara kaupa efni til að fara gera rjómatertu kjól í skólanum. En það er búið að vera nóg að gera hjá okkur hjónum. Systir hennar Ernu og maðurinn hennar komu í heimsókn í Nóvember og þar á undan kom Jónína fænka í heimsókn. Það var ekkert smá fjör að fá heimsóknir en leiðinlegt hversu blankur maður er svo maður gat ekki gert mikið með þeim. En Jónína eldaði 3 Gnocchi hér heima og fór 2 út að borða það. Svo fórum við á markaðinn og keyptum osta og hún kenndi okkur að borða osta á stíl frakka. Svo þegar Heiða og Guðjón voru hér komu þau með Íslenzkt góðgæti í skóinn fyrir fram hehehehehehe...... En já vildi bara blogga smá svo eru bara 18 dagar þannga til ég kem heim í jólafrí.

Fashionizer
20. nóvember 2008 klukkan 23:56
Nýtt verkefni. Sjálfsmynd sem lýsir persónuleika mínum. Ég er búinn að
taka niður gleraugun og þá kemur olteregóið fram, er enn í mínum fötum
en Staína er að bjótast út, er ítsikuhönnunar námi og er því með
tískubók og saumavél, í speglinum má sjá disney pinsses box, friends
safnið mitt, audrey herbun klukku og gay living bókina mína.
Óli TheStar is out.....
![]() |
| Fashionizer |
Óli TheStar is out.....
Á ég að blogga?
13. nóvember 2008 klukkan 11:53
Jæja ég sitt hér við tölvuna og hef hugsað um hvort ég eigi ekki að blogga eitthvað. En um hvað? Það er ekkert merkilegt sem ég man eftir sem ég vill segja. Ég reyndar blogaði aldrei um það að fyrstu vikurnar í skólanum þá var svona hraðnám og maður tók einn áfanga á tveim vikum sirka. Ég var í textílhönnunar áfnga sem var svona tilraunastarfsemi til að búa til nýtt munstur á efni. Kennarinn var mjög spes og við náðum vel saman. Hinnir bekkjar félagar mínir voru hinsvegar ekki eins hryfnir af henni. Ég veit ekki afhverju, en það var kannski því hún hvati okkur svo rosalega mikið til að prufa meira og meira með efnin. Ég skildi hvað hún átti við og ég held það var eitthvað sem fék okkur til að smella saman. Hún lagði líka svo miklar áhreslur hvernig maður gæti verið góður hönnuður og hannað nýtískulega hluti en samt gefið eitthvað út í heiminn. Og kenndi mér um sálfbærileg fyritæki. Þetta verkefni var hópverkefni og hópurinn minn fék 30 sem er hæðsta einkun. Ég er á fullu í skólanum og skil sumt ekkert og annað fatta ég ekkert mál. Það er ekkert smá skrítið að vera í kvöldskóla, mér finst ég vera ný kominn heim þegar klukkan slær tólf. Ég hélt þetta væri betra en ég er ekki 100% viss með það. En það er þó ódýrara. ;) En nóg um mig hvað er að frétta af ykkur? Endilega þið megið bjalla í mig hvenær sem er í íslenska símanúmerið mitt, sem kostar það sama og að hringja í íslenskan heima síma (ef þið eruð ekk með þá þá mailið mér og ég sendi ykkur það). En nú er ég farinn að sofa.
Óli TheStar is out......
Óli TheStar is out......
Peningar Meningar
09. október 2008 klukkan 09:20
Ég hef ákvæðið að sejast niður og blogga aðeins. HVAÐ ER AÐ GERAST Í HEIMINUM? Ríkisstjórnin í Ítalíu var að samþykkja þessa björgunaraðgerðir bankana. Ég sit bara hér og hoppa á milli íslenskra fjölmiðla til að fylgjast með hvað er í gangi heima og annar staðar. Öll höfum við okkar áhuggjur og ég veit ekki hvar þetta endar hjá mér. Mun ég geta haldið íbúðuðinni, mun ég hafa efni á efnisgjödum í skólanum eða hvað þá fyrir mat? En ég hef verið að gramsa og skoða hvað er hægt að gera í þessari aðstöðu sem er komin upp. En ég byrjaði í skólanum í gær og á svona mánuð eftir í hraðáfanga og þá byrjar skólinn samkvæmt stundaskrá. Ég hef keypt mér miða heim um jólin og ég kem heim 19. desember og fer aftur út 5. janúar 2009. Ég er strax farinn að telja niður hehehe.... En já ég verð að tjá mig aðeins um það sem ég hef séð gerast síðustu daga. Hver kallar mig dramadrottingu? Ysss ég hef aldrei áður séð annað eins drama. ekki miskilja mig samt auðvita skil ég þetta. En hvað er þetta allir að bennta á þennan og hinn sem sökudólginn í þessu öllu. Núna er ástandið það svart að við verðum bara tanda saman og ekki leggja neinn í einelti. Núna í þessum aðstæðum höfum við annað nóg að hugsa. Bretar eru að tapa sér líka útaf því sem hann Dabbi kallin sagði. En nú held ég að það sé bara kominn tími á að fólkið í landinu styrki upp ríkistjórnina og hvertji hana til dáða til að taka rétta ákvöðun sama hver það er sem er í foristu. Við skulum ekki eyða orku okkaí neiðkvæðni og leiðindar heitt. En þegar ég ætlaði að bryja blogga þá var ég svo mikið að sgja en einhvernveginn fór það úr hausnum á mér, svo...
Óli TheStar is out....
Óli TheStar is out....
Stiklum bara á stóru núna...
15. ágúst 2008 klukkan 14:06
Ókey þá ætla ég að gera heiðalega tilraunn til að blogga. Ég er búinn að vera svo upptekinn að ég hef ekki einu sinni hitt vini mína. En ég vona ég nái nú eitthvað að bætta uppúr því. En ég go Daniel fóru á KylieX2008 í Manchester 14. Júlí síiðastliðinn. Þetta voru frábærir tónleikar. Þeir bestu sem ég hef séð með stjörnunni minni. Sviði var allt stjórnað sem ein stór sjónvarpsskjár og bak við voru tjöld sem kallst video tjöld og byrtju þau hinar ýmsu myndir framan á sig. Þetta var bara töff, búningarnir efti Jean-Paul og Willam Backer tókst en og aftur að látta Kylie líta út eins og gyðju. Klappstýra, geysja, strandar-partý og svo kom hún inná sitjandi á risa gull litaðri hauskúpu, ég held á sumu köflum hafði ég frosnað þetta var svo flott. En ekki gera ykkur of miklar vonir þegar áður en þið sjáið þetta á DVD eða you toube eða eitthvað. En svo komum við heim daginn eftir og er tíminn síðan þá búinn að líða allt of hratt fyrir mér. Verslunamanna helgina fórum við austur á Höfn til Jóns bróðir og voru þar í 10 daga, Hann og Gaua giftu sig svo þann 8. Ágúst 2008. Gaua var í kjól eftir mig og Bergdís og Rósaí kjólum sem ég hafði valið á þær. Þetta var eitt fallegast brúðkaup sem ég hef upplifað og ég sem hef aldrei grenjað í brúðkaupum grenjaði alla athöfnina og meira til. í kitkjunni var kór sem söng nokkra sálam og svo var líka ein söngur. Svo varð kökku veisla sem var með meira af kökkum en nokkur maður hefði getað borðað á einni ævi. Brúðar tertan var besta terta sem ég hef smakað á ævinni, og ef þið trúið mér ekki þá spyrið Daniel. Það er ekki mikið að skrifa en það er samt búið að vera mikið að gera. Klárs Brúðarkjólinn, flytja dótt, hjálpa til við brúðkaupið, hitta fjölskyldu Daniels osf. En stefnan hjá okkur í kvöld er að slappa af og kíkja svo vestur með Skildi og Magga í heimsókn til mömmu hans Skjaldar. En við sjáum til hvað gerist á morgun. Svo erum við að fara í viku í sumarbústað 22. Ágúst svo er ég bara stunginn af til baka til Mílanó 6. September. En endilega kíkið á myndirnar sem ég hef skelt inn.
Óli TheStar is out......
Óli TheStar is out......
Í Garda de landa
10. júlí 2008 klukkan 20:20
Ég og óli brugðum okkur til Gardaland oftar sem áður, ég held að þetta hafi verið tvöhundruð og sextugasta skipti sem hnoðrinn minn Ólafur Helgi hafi farið þangað, annað skiptið hjá mér. Við fórum semsagt í gær en höfðum ætlað okkur í fyrradag, en ekki gekk það sökum þess að við sváfum svo mikið og þegar við komum út á Sentrale var lestin ný farinn og næsta fór ekki fyrr en um tveim tímum seinna og það var ekki allveg að gera sig. Dagurinn í Garda hefði ekki getað farið betur, við vorum komnir rétt fyrir 10 um morguninn og vorum búnir að fara í tvo bana fyrir hádegisfóður, svo eftir matinn sáum við að hægt vari að kaupa sér svona V.I.P ofur passa sem gerði okkur kleift að fara fram fyrir kukkutíma raðir í tækin, gullnir prinsar með ofurpassa góð tilfining að vera yfir alla hafinn eða þannig. Svo leið dagurinn, rússíbanaferðir í svo miklu magni að kjánaprik hefði ekki lifað það af. Eftir að hafa farið á burtreiðar með alvöru ho ho, skilmingaratriði og leikurum sem voru allveg að deyja úr egói og meira að segja talandi asna þá var kominn tími til að leifa Óla að fara inní minjagripabúð og kaupa teyjur í hárið sitt og ég setti gosbrunn í hárið hans. Dagurinn er á enda um klukkan níu og við töltum í ókeipis rútuna sem tekur okkur upp á lestarstöð og þar tekur við tipical italiano problemo, ítalir eru nefninlega svo sniðugir að vera með bilaða miðasöluvél og lokaða miðasölu og rífa svo bara kjaft þegar maður biður um hjálp svo við bara stukkum upp í lestina og kosslögðum fingur, Óli var allveg að krema í sig þegar hann sá miðavörðin nálgast og hann spyr um miða sem við erum ekki með, þá býðst hann til að selja okkur en tekur ekki við korti svo við vorum bara heimskir túristar frá Íslandi sem gerðu ekkert rangt og fengum að vera í lestinni þar til á leiðarenda.
Danny TheBoy is out.....
Danny TheBoy is out.....
Ekki missa sykur á gólfið.
04. júlí 2008 klukkan 16:50
Ég vona svo sannalega að máltækið "fall er farar heill" sé satt. Því 4. júní er sko ekki búið að vera minn dagur. Hann byrjaði á því að það sprakk freyðivínsflaska í eldhúsinu hjá mér klukka þrjú í nótt. Ég hélt einhver hafði brotist inn. Ég labbaði um íbúðina og sjá um leið og ég kom inní eldhús glerbrot útum allt og rennandi blaut gólf og ar sem flaskan hefði legið. Hún hafði verið hliðinná kokkabókunum mínum með honum Jamie Oliver svo ég þurfti að bjarga þeim úr bleyti. Ég þurfti að þrífa allt eldhúsgólfið til að ná glerbrotunum í burtu, Flaskan spark svo rosalega að það voru glerbrot flísar útum allt. Ég var að þrífa til svona klukkan fjögur, hálf fimm í nótt. Ég sem var ný búinn að taka eldhúsið í gegn. Svo í morgun fór ég og kyrjaði heima hjá Andrea svo fórum við saman til að sækja um heimilislæknir handa mér. Ég var að fara í þriðja skipti, því í það fyrsta var svo löng röð að ég komst ekki að, í því öðru sögðu þau mér að fara eitthvað annað og gáfum mér heimilisfang sm ég fann ekki einu sinni á götukorti. Og núna komst ég að því að ég þarf ekkert að skrá mig þarna ég á bara mæta til læknis með EU sjúkratryggingakortið og búið. Svo á leiðinni heim fekk ég í magann svo ég fór við í skólann og fór á klósetið. Eftir það ákvað ég að kveðja fólkið í skólanum, svona áður en ég fer heim til Íslands. Ég talaði við konuna sem er með ábyrgð á erlendum nemum og hún spurði hvort ekki væri allt í lagi, ég ákvað að svara henni hreinskilnislega og sagði henni allt kjaftæðið í skólanum. Hún skellti því öllu á mig, sagði að mig að fara á skrifstofuna og spurja þegar svona kemur fyrir, ég sagðist hafa gert það en ekkert svar fengið. Þá sagði hún við mig að fylgjast með tímatöflunni á prófum betur, ég sagði að ég hafði skrifað ALLA í dagbókina plús downlodað henni í tölvuna. Þá sagði hún mér að fylgjast betur með tilkynningum frá skólanum, Ég sagðist hafa gert það þrisvar sinnum á dag. Hún tók þessu ekkert alvarlega og sagði að ég gætti nú bara hlegið að þessu. Ég sagðist geta það núna en ekki þá. Og bætti við að mér þætti þetta fáránlegt, og hugsaði "en svona er Ítalía, ég fæ henni ekki breyt." Svo þegar heim var komið tók ég úr þvotta vélinni. Ég byrjaði á því að missa boxerbuxurnar mínar niður á jarðhæð og ég bý á 3. hæð. Ég hljóp niður dauð þreyttur eftir að hafa komið upp áðan með tvo poka sem hver var um 4,5 kg. Nei þetta var ekki það eina sem ég missti ég missti klemmu og bol í þakrennuna fyrir neðan og ég var alveg nokkrar mínútur að veða hann upp aftur með kústskafti. Svo ákvað ég að sauma smá en það fór allt í klessu og ég þurfti að rekja upp aftur og aftur, og ekki enn búinn að klára. Svo ákvað ég að gera ís handa mér og Daniel. Ég þurfti sex egg í ísinn en átti bara fjögur. Svo ég ákvað að minka uppskriftina. Eitt eggið brotnaði rauðan og ég náði ekki að veiða hana uppúr, svo nú átti ég bara þrjú egg. Það hlítur að duga. Forminn sem ég hafði hugað mér fyrir ísinn pössuðu ekki svo ég þurfti að skipta, og á meðan ég var að gera ísinn datt rafmagns þeyttarinn á gólfið. Eftir þetta missti ég ísinn úr formunum sem sem betur fer bjargaðist mest allur ísinn. Svo missti ég sykurkarið á gólfið og sykur útum allt ég þurfti að ríma allt eldhúsið með þrjá 40 kg. kassa frá Signý svo ég gæti sópað upp sykurinn. Þegar ég byrjaði að sopa festist sykurinn í kústinum og dreifði sér hægt og rólega um gólfið og klístraðist við gólfið í leiðinni. Ég náði mér í fægiskópluna og úr henni hafði verið enn glerflísar, sem hafa ekki farið úr henni í gær í ruslið, og duttu flísarnar úr og útum allt gólf. Ég sá að eina leiðinni væri að skúra allt gólfið aftur. Svo eftir þetta allt þurfti ég að skella öllu dótinu (viskustykki, tuskur) og svona í þvottavél og er a bíða eftir henni núna. Já svo það er eins gott að máltakið standi sig eftir að hann Daniel verður kominn á morgun. Þetta gæti orðið seinasta bloggið mitt áður en ég kem heim (15. Júlí). Svo sjáumstu á Íslandi!!!!!!
Óli the star is out.....
Óli the star is out.....
Eftirlýst Dúfa
01. júlí 2008 klukkan 11:39
Dúfa hræddi á heimiliskonu í Mílanó föstudags morgun 27. Júní. Konuna sakaði ekki og dúfan komst heil útúr húsi eftir að bóndinn á heimillinu hjálpaði dúfunni að rata út. Talið er að dúfan hefur villst á leið á flugi sínu um nóttina í gengum opinn eldhúsglugga og ekki ratað út. "Ég var á leið í sturtu þegar dúfan kemur fljúgandi inná baðherbergi á móti mér, ég hélt ég yrði ekki eldri" segir húsmóðirin. Við það að dúfan flaug á móti henni bregður henni svo hryllilega að hún dettur á gólfið. Bóndinn heyrir öskur konunar og kemur fram og hjálpar til við að leita af dúfunni. "Ég sá enga dúfu og eftir einhverja leit fann ég hana dauð hrædda inní horni á baðherberginu, þar hjálpa ég henni að rata út með því að ýta henni í rétta átt" segir bóndinn. Við mælum með því að halla gluggum á nóttunni svo óvelkominn dýr komi ekki inn til ykkar.
Ég er búinn í prófum og fékk bara að taka eitt því ég missi af einu enn, þar sem ég mætti í próf og beið í fjóra tíma og var sendur heim. Nokkrum dögum seinna frétti ég svo samdægurs að prófið var í gangi og missti því af því, því f***ing skólinn sendi aldrei til kynningu um hvenær prófið á að vera. Jæja en Laugardagin 28. Júní fór ég og Erna til Bologna til að skemmta okkur í hýrri göngu. Ég hafði haft samband við Erik, strák sem ég kynntist á Gay Pride 2006 í Torino. Þar hitti ég hann og hann bauð okkur að vera uppá trukknum sem hann var að skreyta. Sem sagt ég hef ALDREI farið í svona göngur og bara horft á. Við lögðum af stað kl. 9 um morgunninn heiman frá okkur og tókum rútuna með Mílanó samtökunum hýra fólks. Þegar Til Bologna var komið röltum við um fundum Erik að lokum, og fórum í göngu sem var í 4 til 5 tíma. Trukkurinn okkar keyrði niður staur og þurfti að rífa hann uppúr götunni (sjá myndir). Við dönsuðum af okkur rassinn og urðum dauð þreytt eftri gönguna. Erik hjálpaði okkur svo að fá að taka 21:30 rútuna í stað rútuna sem átti að fara klukkan 5 á sunnudags morgni. Við voru í klædd tískufatnaði sem við gerðum sjálf með FAGHAG (hommahækja) skrifað á okkur. Ég var með FAG (hommi) og Erna Lóa var með HAG (hækja). Einn skemmtilegasti dagur í Ítalíu, hann fer pott þétt á topplistann hjá mér endilega kíkið á myndirnar.
Óli TheStar is out and proud.....
Gay Pride í Bologna!!

| Bologna Pride 2008 |